20nóvember

About time!!!

Jæja komið að því, langþráð færsla fær að líta dagsins ljós fyrir þær 8 hræður sem lesa síðuna hjá okkur daglega. Ég var að koma ofan úr HR þar sem ég sat með sveittum Njarðvíkingi, honum Daníel aka D double G en við erum að vinna rannsóknaverkefni.
Helgin var frekar busy enda var ég mótsstjóri á móti hjá mb. 10 ára þ.e strákunum sem ég þjálfa. Við unnum okkur keppnisrétt í A. riðli eftir að hafa unnið B riðilinn nokkuð sannfærandi og viti menn, við tókum A riðilinn einnig mjög sannfærandi og unnum hann líka :) Strákarnir í yngriflokkaráði í Haukum drulluðu upp á hnakka þannig að það þurfti að auka klósettpappírsframleiðslu í Papco um 60% en þegar ég mætti upp á Ásvelli að þjálfa guttana var enginn sjáanlegur sem átti að sjá um mótið og ég ekki látinn vita að ég þyrfti að sjá um allt saman. Þannig kallinn henti upp öllum græjum og allt saman meðan yngriflokkaráðið hafði margt þarfara að gera, þ.e. að sofa. Pínu biturleiki hér á ferð en ég varð bara að koma þessu frá mér hehe :)
Í meistaraflokknum er það að frétta að við unnum leik í fyrsta skipti í langan tíma, en samt spiluðum við vel undir getu. Við unnum Þór þar sem Kevin aka Rim rocker fór svo miklum hamförum að körfurnar á Ásvöllum bíða þessa aldrei bóta. Fleiri penslarar hættir en hinn gullfallegir Ottó aka Dr. Manic hefur söðlað um og gengið til liðs við Stjörnuna. Þeir eiga eftir að njóta góðs af Óttó, bæði í sókn og vörn. Ottó verður án efa saknað í Haukunum. Næst er erfiður leikur á móti KR í bikarnum á Laugardaginn og vonandi að Siggi verði búinn að jafna sig á botlangauppskurðinum fyrir þann tíma.
Heyrði í Dodda Spanish um daginn en kallinn er kominn með starf í Barcelona, ekki samt sem tvífari Eiðs Smára en hann er orðinn Junior accountant for GM motors í Evrópu. Veit ekki alveg hvað felst í þessum titli en þetta hljómar allavega vel á ferilskránni þegar Doddinn fetar í fótspor Mike Tyson og sækir um í male prostitution í Las Vegas, enda vita allir að Doddanum finnst gaman að ferðast
Hlæjandi Það verður gott að sjá kvikindið 21.des, þó stutt verði.

Jæja lærdómurinn kallar, vonast til að fá einhver komment annars er ég hættur
Glottandi

later dawgs & puppies
20. nóvember 2006 klukkan 02:31
Villi
11 athugasemdir
31október

Er ekki komið að því, KJ10 hendir inn færlsu eftir langa dvöl.


Það er allt vitlaust að gera í skólanum þannnig að mar hefur ekki verið duglegur að skrifa blogg, enda bloggið kanski að verða svoldið yesterday...mar verður nú að fylgja flórunni.

Annars er maður bara sveittur þessa dagana að skrifa ritgerðir og vinna hópaverkefni.


Við fórum í skítavík og töpuðum aldrei þessu vannt fyrir Keflavík, en þar vorum við framan af í fyrri hálfleik þangað til að keflavík setti smá pressu á okkur. Eftir það voru skúringar drengirnir sveittir að þurka skítinn af gólfinu. En þeir sem voru góðir í þessum leik voru Kevin, Mo og Siggi aka 13 þristar í grillið áðér. Villin átti líka eina D-wade hreyfingu sem fékk mig til að standa upp og segja; þarna þekki ég þig hlunkur!!!!!

Restin af okkur gat ekki rassgat, og áttum skilið að fá það í þann óæðri þarna. Einnig áttu dómararnir skilið að fá það í þann óæðri.
En nóg af vælinu, leikur á móti KR á fimmtudaginn og vonandi förum við að taka okkur saman í grillinu og hættum að spila eins og hollenskar húsmæður.

BTW nýjar myndir komnar ú leikjum okkar á myndasafni.
KJ10 Öskrandi

31. október 2006 klukkan 15:29
Villi
7 athugasemdir
29október

Sucky Saturday

Þá er loksins komin helgi.....ekki mikið um að vera nema karfa og skúlen!! Kiddi husband er á fullu í eldhúsinu þessa dagana að græja nýja eldhúsinnréttingu og ég skellti mér í dag og hjálpaði kvikindinu að bera nokkrar plötur og eldavél, þess á milli sem við Kiddinn reyttum af okkur fimmaurabrandara sem fröken Thelma skildi lítið í hehe :) Það verður lítið gert í kvöld nema kannski kíkt út í smá "rassaskoðunarhring" í bæinn. Ekki mikið um að vera og Doddi Timberlake aka "Ég er svo upptekinn að tantra spænskar meyjar að ég gleymi stundum að hafa samband við vini mína" er sko ekki að missa af miklu hérna heima!!! Ekki mikið að frétta af Doddanum en kallinn samt víst kominn með vinnu sem einhver stórlax og er hann búinn að læra spænskuna mjög vel á þessum stutta tíma :) way to go Doddz!!!
Litlu 10ára pjakkarnir mínir unnu mót um síðustu helgi og þetta var fyrsta alvöru mótið hjá okkur og litlu hermennirnir stóðu sig eins og hetjur við spiluðum 2 leiki þar sem samanlagður stigafjöldi var 156-54 fyrir okkur :) :)
Eigum leik við Kef á morgun í Sláturhúsinu það sem við þurfum að taka hausinn út úr rassgatinu á okkur (afsakið orðbragðið) ef við ætlum að geta eitthvað og vonandi að ég sé kominn með þolið aftur....búinn að vera veikur hérna heima með ælupest, en öll fjölskyldan lagðist í rúmið í vikunni.....allt útaf einhverjum litlum bróðir sem smitaði okkur!!!

http://viewmorepics.myspace.com/index.cfm?fuseaction=viewImage&friendID=45076317&imageID=485168937
ein mynd hérna í lokin og vonandi gerum við eitthvað af þessu á morgun "Í GRILLIÐ Á HONUM" hehehe ;)

later, góða helgi
Villi

ps. ég skora á Kiddann að taka næstu færslu, ég er búinn að vera svo duglegur og taka tribute á hann og allt, endilega smá komment líka, það tekur bara 1 mín hehe :)

29. október 2006 klukkan 03:02
Villi
4 athugasemdir
21október

Sigur(đur) í fyrsta leik :D

Haukar 89-88 Tindastóll
Við Haukapjakkar unnum okkar fyrsta leik á tímabilinu, leikurinn var hinn skemmtilegasti að mínu mati. Hann var frekar hraður miðað við gönguboltann sem við höfum spilað í gegnum árin, enda gott að hafa léttfeta eins og Roni Leimu til að hlaupa aðeins. Já leikurinn endaði 89-88 fyrir okkur og var það enginn annar en rauða ljónið Sigurður Þór Einarsson sem tryggði okkur sigurinn með 3ja stiga körfu þegar 12 sekúndur voru eftir. Einnig verð ég að gefa Captain Sæsa smá credit fyrir sendinguna á SIG. Skemmtilegt atvik gerðist í leiknum þar sem ég þurfti að dekka einns sneggsta mann sem ég hef séð á minni stuttu ævi, Lamar Karim kanann hjá Tindastól. Atvitkið var það að ég var á leiðinni í hraðaupphlaup og hann byrjaði eitthvað að "trashtalka" mig og ég tók mig til og smellti tvist í grillið á honum :D En Adam var ekki lengi í paradís því litla dýrið (173cm) var ekki sáttur og brunaði í átt að okkar körfu og ég reyndi auðvitað að halda í við hann en svo tók hann einhverja svaka snögga hreyfingu á mig og ég sá varla hvað hann gerði og hringsnérist eins og hundur að elta rófuna á sér Óákveðinn Afleiðingarnar: Jú ég endaði á bossanum hehehehe Svalur  Við lékum án KJ10 aka The Lawyer, kallinn enn að jafna sig í ökklanum en hann kemur sprækur inn í liðið fyrir leikinn á móti Grindavík á morgun.
Þessi helgi verður væntanlega róleg enda mikið að læra og nóg um að vera í körfunni, er einnig að fara með litlu pjakkana sem ég þjálfa að keppa á þeirra fyrsta íslandsmóti :D

Jæja nenni ekki meiru í bili, ákvað samt að taka smá tribute á Siggann og skella mynda af honum á forsíðuna

V
21. október 2006 klukkan 21:00
Villi
3 athugasemdir
16október

Bevo latte, got more head than he got body!!!

Jæja gott fólk, þá er enn ein mánudagurinn genginn í garð. Nóg að gera í skólanum að vanda. Ég er í hópverkefnum á fullu og það liggur við að ég þurfi bara flytja í Kef því gaurarnir 2 sem eru með mér í verkefnum búa báðir þar. Shiiiiii. Fór í dag á Olsen Olsen í keflavík með Danna aka Danson og fékk mér Hraðlestarlangloku og guð minn almáttugur hvað það var gott Ullandi mæli með Olsen Olsen!!!!
Helgin var róleg en Jónasson og Kuki komu í mat heim á föstudaginn í 3ja rétta máltíð, byrjað á aspassúpu, svo var það lamb ala Mamma og súkkulaðikaka með róma í eftirrétt. Við hlunkarnir vorum að borða í tæpan einn og hálfan tíma. Eftir það hefði mar sko þurft að taka smá blund eins og litlu börnin...shit hvað við vorum saddir. Kakan var góð en ég var ekki alveg nógu laginn með rjómasprautuna og tóks að sprauta rjóma yfir hendina á Kiddanum. KJ hélt að um árás væri að ræða og gólaði í þann mund sem hann mundaði hnífinn, tilbúinn til orrustu hehe. Bojovic fannst þetta frekar fyndið og í þann mund og rjóminn sprautaðist sagði hann "úúú right in the face baby" og þeir sem þekkja Kuki vita að þetta tengdist kynlífi á einhvern hátt hahaha Hlæjandi

Tímabilið er að byrja á fimmtudaginn og eigum við Haukarar leik á móti stólunum á heimavelli. Jónasson er tæpur en þykist ætla að spila þrátt fyrir að ég og Bojovic séum á móti því!!! Hvíldu þig drengur og náðu þér góðum hehe Brosandi Talandi um Bojovic, þá er kallinn enn á klakanum en fer í fyrramálið og þarf ég að skutla kvikindinu upp á völl milli 4 og 5 en náði að redda mér "krassi" í keflavík fram að skóla svo ég þurfi ekki að keyra aftur í bæinn og svo aftur til kef Svalur

Haukastelpur þegar búnar að vinna 2 titla í körfunni og tímabilið ekki byrjað.....þær eru að standa sig með prýði og er Gústinn með heraga á æfingum.

Jæja nenni ekki meiru í bili, vil þakka Kuki fyrir heimsóknina, þú er alvöru penslari hehe Svalur

Later
V-diddy
16. október 2006 klukkan 22:40
Villi
7 athugasemdir
06október

Kuki my man, de si brate!!!

Komið að færslu, ekki mikið gerst síðan síðast nema það er allt að verða vitlaust í skólanum!!! Ég bað um frí á æfingu áðan vegna anna í lærdómnum og ég held ég hafi bara aldrei gert það á ævi minn áður....en ég er meiddur þannig ég missti kannski ekki af miklu!!! Ökklakvikindið ennþá að angra okkur hermennina og Don Kiddi er að fara í röntken til að tjekka á sér því hann er víst ekkert að skána blessaður Fýldur En yfir í aðra sálma....ekki passíusálma Doddi minn....heldur skemmtilegri sálma því óbreyttur Predrag "KUKI" Óskar Bojovic hinn serbnesk/íslenski vinur okkar er mættur á klakann, ég sótti hann á flugvöllinn í dag og þurfti að bíða eftir honum í 45 mín. vegna þess að þeir í tollinum stoppuðu hann eins og alltaf og tóku af honum einhverja tösku með fullt af búningum í hehe Hlæjandi Ég er semsagt búinn að vera í hláturskasti síðan þessi pensill kom og hann var varla stiginn út úr Leifsstöð áður en hann fór að reyta af sér brandarana!!! Daðarandi við afgreiðslustelpur í Hagkaup og ég veit ekki hvað og hvað haha ;) Ég kom honum fyrir á gistiheimili í Kóp. og þar mun hann dúsa næstu 12 næturnar eða svo!! Endilega heimsækið kallinn þeir sem þekkja hann og taki það til sín sem eiga Svalur En allavega er ég out í bili og farinn að fínpússa ritgerðina mína....

later
V
06. október 2006 klukkan 02:44
Villi
7 athugasemdir
01október

1.október

Þá er komið að jómfrúarfærslunni á þessari síðu. Gott fólk það er kominn október og veðrið ennþá betra heldur en í sumar :) En hvað sem því líður þá erum við hermennirnir á fullu í skólanum og höfum varla tíma til að heilsa hvor öðrum nema þá hels á æfingum hehe :) Kiddinn er að fara í fyrsta prófið á þriðjudag í lögfræðingur og er hann væntanlega uppí skóla núna að lesa eins og hann eigi lífið að leysa. Sjálfur er ég að gera heimildarritgerð um misnotkun human growth hormone í afreksíþróttum. Flestir sem hafa eitthvað vit á íþróttum sjá að þetta lið t.d. í körfunni er ekkert eðlilega massað. Eins og t.d. LeBron James, gaurinn er 22 ára og er helmassaður og með stærri kjálka en sjálfur Jay Leno, en stór kjálki er aukaverkun frá misnotkun HGH. Doddi TantraTarfur er enn á Spáni, hann er nú aðeins farinn að láta heyra í sér eftir langt hlé, ég held að hann hafi verið búinn að fá leið á okkur hermönnunum hehe :) sorry doddz smá djók!!!Hlæjandi Kallinn er að læra spænsku og að leita sér að vinnu. Þess á milli sem hann lætur reyna á hljóðeinangrunina í svefnherbergisveggjunum í íbúðinni sinni Svalur
Nú er tímabilið í körfunni loksins byrjað, við spiluðum við ÍR á föstudag, unnum þá og komumst áfram í bikarnum! Mjög ánægður en mér tóks að stíga á löppina á einum ÍR-ingnum og snúa á mér ökklann, ég semsagt tók Kiddann á þetta en við félagarnir erum báðir á annarri núna eins og asnar, eða svo gott sem hehe :) fínu hrakfallabálkar!! En við eigum leik í kvöld á móti Sköllunum í Borganesi og var mér kippt úr liðinu til að jafna mig fyrir laugardalshöllina ef við vinnum í kvöld :)
Helgin búin að vera róleg, lá með klaka á ökklanum og uppvíraður af Voltaren allt föstudagskvöldið. Kíkti aðeins út í gær með Stjána Rokk, gaurinn búinn að vera á Bifröst í 5 vikur og mar ekkert séð kappann. Viti menn hann er búinn að raka af sér hökutoppinn sem hann hefur skartað í 3 og hálft ár....shit ég var búinn að gleyma að gaurinn er með rassgat í andlitinu hahahaha Hlæjandi Hann getur semsagt skeint sér og snýtt sér í sömu hreyfingunni og var það aðal djókerinn í gær!! En Stjáninn er ekki hörundsár og gerði ósapart grín að sjálfum sér í leiðinni hehe !!!

Jæja ég er farinn að tala í hringi hérna, besta að fara að læra meira!!!
verið dugleg að kommenta!!!!
ps. setti myndir inn hérna til hliðar, check it

Later
Wilson
01. október 2006 klukkan 16:22
Villi
9 athugasemdir
30september

Nýtt blogg hjá 220 soldiers

Jæja er aðeins að tjekka á þessu, við hlunkarnir vorum orðnir leiðir á þessu blog.central drasli þannig við ákváðum að breyta aðeins til.......síðan er enn í vinnslu ;)

kv. the ankle twisting motherf***ers Villi and Kiddi
30. september 2006 klukkan 20:45
Villi
3 athugasemdir

Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing